Search

Núna á fimmtudagskvöld kl. 20 ætlum við að ráðast á garðann þar sem hann er allra hæstur og stofna VG-félag í Garðabæ (helbláasta bæjarfélagi landsins!) Þar ætlum við að særa fram alla hugsanlega VG-inga í skápnum og bjóða þau velkomin fram í dagsbirtuna og til starfa. Um leið ætlum við að bjóða öllum öðrum í kraganum að koma og hitta frambjóðendur. Í raun yrði þetta þá sameiginlegt framtak og boð okkar allra frambjóðenda SV. Það væri því mjög gott ef þið munduð aftur nenna að koma með smá kræsingar… já?! Komið svo endilega líka með fólk með ykkur!!! Og auglýsið þetta sem víðast… allir velkomnir! 

Gillið verður sem sagt á FIMMTUDAGINN KL. 20 Í GARÐABERGI (Garðatorgi 7, beint fyrir ofan bókasafnið). Fundarstýra verður Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Garðbæingur. Það verða ekki neinar framboðsræður heldur mun hún bara örstutt kynna frambjóðendur með nafni, benda fólki á bæklingana og ítreka forvalið á laugardag, og svo bara “minglum” við eins og í góðu boði. Einhver tónlistarmaður treður upp, kosin verður stjórn nýja félagsins og svo er bara að hafa það dálítið huggulegt… og mála Garðabæ rauðgrænan!

Hlakka til að sjá ykkur,

Comments are closed.