Search

Hér erum við sterk og mætt!!!

Kjördagur forvalsins í Kraganum verður þann 14. mars n.k. í Hamraborg 1-3 í Kópavogi, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og í Hlégarði í Mosfellsbæ frá kl. 10-22. Utankjörfundur verður í Hamraborg 1-3 í Kópavogi 12. og 13. mars frá kl. 16-21

Þeir sem eru utan höfuðborgarsvæðisins geta kosið í póstkosningu sem fer fram þannig:
1. Óska eftir að fá kjörseðil sendan skal berast í netfangið vg@vg.is.
2. Þegar kjörseðill berst skal viðtakandi prenta hann út og ganga frá kosningu sinni.
3. Kjörseðillinn skal lagður í ómerkt umslag sem síðan er sett í annað umslag merkt á eftirfarandi hátt:
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
b.t. kjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi
Pósthólf 175
121 Reykjavík
Kjósandi skal jafnframt skrifa nafn sitt og kennitölu yfir flipa ytra umslagsins.
4. Atkvæðið skal sent kjörstjórn merkt eins og að framan greinir og skal hafa borist kjörstjórn fyrir lokun kjörfundar 14. mars 2009.
Það er líka hægt að koma umslagi til t.d. frambjóðenda sem kemur svo umslaginu til skila.
Athugið að til að geta kosið þarf maður að vera skráður félagi, hér er hægt að skrá sig http://www.facebook.com/l.php?u=http://www.vg.is%2Fganga-i-flokkinn%2FÂ
Ef viðkomandi er ekki með lögheimili í Kraganum þarf hann að senda póst á vg@vg.is og biðja um það að verða skráður í eitt svæðisfélaganna í Kraganum, t.d. Kópavogsfélagið :)

Til að kynna sér aðra frambjóðendur má kíkja á þetta: http://www.facebook.com/l.php?u=http://www.vg.is%2Fmedia%2Fkosningar%2F2009%2Fforvalsbaekl_SV_net.pdf

Comments are closed.